Inzpira magazine er sænskt föndur- og lífstíls-tímarit sem er alveg ótrúlega skemmtilegt, fróðlegt og stútfullt af allskonar brill hugmyndum.
Ég rakst á þetta frábæra tímarit (
og bloggið) í fyrra á bloggi sænskrar vinkonu minnar og ég varð alveg heilluð. Auk þess hef ég verið svo innilega heppin að fá eina skrappsíðu (desember 2011) og eitt kort (í þessu tölublaði á bls: 57) birt í þessu frábæra tímariti.
Þess vegna langar mig að deila hamingju minni með því að gefa eitt stykki af nýjasta tölublaði
Inzpira hér á blogginu. Það eina sem þið þurfið að gera er að kommenta hér á þessa færslu
fyrir miðnætti 13. september og svo dreg ég út einn heppinn vinningshafa sem fær blaðið sent heim til sín.
Takk fyrir að kíkja og njótið helgarinnar! :D