Eitt af uppáhaldskortunum mínum eru svokölluð harmonikkukort (tri-fold kort) og því datt mér í hug að sína ykkur hvernig ég geri þessi kort skref-fyrir-skref.

Skerið cardstock pappírinn í tvennt-> 6 tommur x 12 tommur
Skorðið cardstock pappírinn á 6 tommu hliðinni á eftirfarandi tommum -> 2"+ 4"+ 8"+ 10"

Síðan skerið þið efti 12 tommu hlið pappírsins (lengri hliðinni) í 12" hnífnum ykkar (eða með hníf og reglustiku) og hafið 1 tommu frá enda pappírsins. Byrjið að skera frá 2 tommu skorðuðu línunni að 10 tommu línunni. Endurtakið á hinni hliðinni.

Næst brettið þið á öllum skorðuðu línum eins og myndin sýnir.

Og þá ætti kortagrunnurinn að líta svona út séð ofan frá.

Skerið skraut-pappírinn niður í eftirfarandi stærðir (í tommum) og límið á kortagrunninn.


Þá er ekkert annað eftir en að skreyta kortið að vild.

