Það er alveg svaka gaman að skrappa úr öllu fallega dótinu sínu en það er eiginlega jafn gaman að versla skrapp/föndur dót. Og þegar föndrari er búinn að kaupa slatta af dóti og þá þarf að komu öllu fyrir og ekki er verra að vera með skipulagið á hreinu. Því datt mér í hug að deila mínum skipulags-punktum með ykkur.
Við skulum byrja á 12x12 pappírnum.
Ég nota þessar hirslur frá Cropper Hopper sem taka 12x12 pappír.

Einnig eru til þessar glæru hillur sem hægt er að leggja ofan á hvor aðra til að spara pláss. Þær eru mjög þægilegar er kosta slatta þegar þarf að panta að utan.

Ef þið getið ekki nálgast þessar tvær útgáfur þá eru líka til hirslur í Rúmfó (hvítar/m. munstri) sem passa einnig fyrir 12x12 og auðvitað er hægt að kaupa sér stóra zip-lock poka (t.d í Kosti eða Mega Store) og raða þeim svo í kassa/hillu sem rúmar allt góssið.

Vonandi hjálpar þetta einhverjum við skrapp-skipulagið! :D