Þá er fimmta tölublað og (jafnframt síðasta tölublað ársins) Skrapparans komið á veraldarvefinn. Að þessu sinni er notast við eina skissu sem grunn að þremur síðum og til að fagna því að ég hafi náð að koma fimm tölublöðum frá mér á árinu langar mig að starta skemmtilegum leik! :D
Ég hvet alla til að notast við skissuna í blaðinu til að gera sína eigin skrapp-síðu og deila henni með okkur hér á blogginu hjá herra Inlinks (bláa kallinnum)! . Þið hafið til 13. janúar til að senda inn síðu og dreg ég út einn heppin skrappara sem fær jóla/nýars skrapp-pakka frá mér.
Gleðileg jól og farsælt komandi skrapp-ár! :D


