Stundum langar manni að koma svo miklu frá sér á einni síðu án þess þó að hann yfirtaki síðuna, og kannksi er ekki pláss fyri allt blaðrið í manni. ;o)
Efni: Basic Grey - Origins pappír + Basic Grey Origins límstafir + Skrapp og gaman.is blóm + Prima laugblöð + Bazzill cardstock + Basic Grey brads + felt blóm + Heklað blóm + Tim Holtz blek + merkimiðar
Þá er sniðugt að nota falinn texta eins og ég geri hér. Þessi síða er um óskalagalista eldri dóttur minnar og þetta voru 100 orð allt í allt og mér fannst það frekar mikill texti á einni síðu.
Í stað þess að hafa textan fyrir allra augum ákvað ég að prenta óskalögin hennar á merkimiða, skreyta þá eilítið og setja miðana svo fyrir aftan við myndina. Þá næ ég að hafa allan þann texta sem ég vil án þess að hann taki algerlega yfir síðuna.


